Rekstur Icelandair Group samstæðunnar gekk betur á fyrsta ársfjórðungi 2009 en áætlanir félagsins sögðu til um. Þetta kemur frem í tilkynningu sem félagið hefur sent í kauphöllina.  Munar þar mestu um að afkoma stærstu félaganna í samstæðunni, Icelandair og Travel Service, var talsvert umfram væntingar og hefur Icelandair ekki skilað jafn góðri rekstrarniðurstöðu á fyrsta ársfjórðungi fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) frá stofnun félagsins í núverandi mynd eða frá árinu 2002.

Jafnframt hefur sjóðstreymi frá rekstri samstæðunnar verið sterkara en gert var ráð fyrir og hefur félagið ekki þurft á viðbótarlánveitingum frá viðskiptabanka sínum að halda á árinu eins útlit var fyrir í upphafi þess segir í tilkynningu.

,,Allt frá því að Icelandair Group var skráð á markað á seinni hluta ársins 2006 hefur vægi skammtímaskulda í efnahagsreikningi verið of hátt og hafa lykilkennitölur efnhagsreiknings félagsins lítið breyst frá árslokum 2006.  Eins og fram kom í tilkynningu frá félaginu þann 26. janúar sl. voru víxlar að fjárhæð 2,5 milljarðar endurfjármagnaðir til skamms tíma eða þriggja mánaða.  Frá þeim tíma hefur félagið unnið náið með viðskiptabanka sínum að endurskipulagningu á fjármagnsskipan og hefur sú vinna gengið vel.  Markmið vinnunnar er að aðlaga greiðslubyrði að því sjóðstreymi sem rekstur félagsins skilar til lengri tíma.  Gert er ráð fyrir að vinnunni ljúki á næstu vikum og hefur verið gengið frá framlengingu á framangreindum 2,5 milljörðum til samræmis við áætluð verklok," segir í tilkynningu félagsins.