Guðmundur Sigurðsson, forseti lagadeildar HR, segir laganámið í dag vera betra en það var áður enda jákvæð þróun að hafa fleiri háskóla en einn sem bjóði upp á laganám. Hann sér þó ekki fyrir sér að fjórir skólar geti útskrifað lögfræðinga til frambúðar.
Rasmus Kristian Feldthusen, prófessor og formaður námsráðs lagadeildar Kaupmannahafnarháskóla kom til landsins til að kynna þær breytingar sem voru gerðar í Kaupmannahafnarháskóla árið 2011.
Nánar er talað við Guðmund í síðasta tölublaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.