Hagnaður Ljótu hálfvitanna ehf. sem eru í eigu meðlima samnefndrar hljómsveitar batnaði verulega milli ára.

Hagnaður fyrirtækisins jókst úr 709 þúsund krónum í tæpar tvær milljónir króna milli áranna 2016 og 2017. Rekstrartekjur námu 5,6 milljónum miðað við 4,1 milljón árið 2016.

Þá voru rekstrargjöld nær óbreytt milli ára. Eignir félagsins nema 2,3 milljónum króna en þar af er handbært fé 1,8 milljónir króna. Eigið fé nemur tæpri milljón.