Í tækniheimum vestra er líkt og febrúar árið 2000 sé runninn upp  ný, að minnsta kosti ef miðað er við Nasdaq hlutabréfavísitöluna, en tæknifyrirtæki eru áberandi á henni. Í síðustu viku náði vísitalan hæðum sem hún hefur ekki náð frá því rétt áður en tæknibólan fræga sprakk í marsmánuði 2000.

Fyrir svartsýna er þetta merki um að markaður með tæknihlutabréf sé orðinn froðukenndur. Gengi hlutabréfa félaga eins og Facebook, Twitter, Arm Holdings, Tesla og fyrirtækja í líftækniiðnaði skipta um hendur á verði sem sumir eiga erfitt með að skilja. Facebook greiddi nýlega 19 milljarða dala fyrir fyrirtækið WhatsApp, sem er um 345 milljónir dala á hvern starfsmann. Fjöldi dýrra fyrirtækja hefur ekki verið meiri frá því að bólan sprakk, en hér er um að ræða fyrirtæki sem eru verðmetin á meira en tuttugufaldan hagnað eða tífaldan hagnað og eigið fé samanlagt.

Það þarf því ekki að koma á óvart að eigendur fyrirtækjanna hafa nýtt tækifærið til að innleysa hagnað. Það sem af er ári hafa fleiri fyrirtæki verið skráð á markað í Bandaríkjunum en á nokkru öðru ári síðan árið 2000.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast tölublaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð .