Samtök Atvinnulífsins fagna frumkvæði ríkisstjórnarinnar sem kynnti í dag aðgerðir til að efla traust á atvinnulífinu sem beðið hafi hnekki vegna Samherjamálsins. Frá þessu er greint á vef Samtakanna sem binda vonir við að aðgerðirnar leiði fram sannleikann í málinu þannig að íslenskt atvinnulíf öðlist tiltrú þjóðarinnar á ný.

„Það er allra hagur að ásakanir í garð Samherja verði rannsakaðar ítarlega og eins hratt og kostur er. Sú háttsemi sem fyrirtækið er sakað um rýra bæði traust á atvinnulífinu og skaðar orðspor Íslands.“

Samtökin segja eðlilegt að spurningar komi fram um hvort nægjanlega vel sé að verki staðið í atvinnulífinu almennt. „Það má alltaf gera betur, einkum varðandi gagnsæi og upplýsingagjöf. Komi fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til framkvæmda munu þær auka gagnsæi og traust í garð atvinnulífsins.

Traust er undirstaðan í viðskiptum. Þegar það bregst verður að ríkja trú á að eftirlitsaðilar og réttarkerfið grípi til viðeigandi ráðstafana. Nú þurfa eftirlitsaðilar að vinna hratt og þau sem tengjast áðurnefndum viðskiptum að eyða sem fyrst óvissu um þátt sinn í málinu,“ segir á vef Samtaka atvinnulífsins sem eru „reiðubúin til samstarfs til að svo verði og telja að ríkisstjórnin hafi stigið mikilvægt skref með yfirlýsingu sinni í dag.“