„Það er miður að viðsemjendur hafa til þessa ekki boðið okkur annað en kjararýrnun í formi krónutöluhækkana og skerðingar þegar áunninna réttinda,“ segir í yfirlýsingu frá aðildarfélögum BHM vegna stöðu kjaraviðræðna við viðsemjendur sína, íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg.

Samningar hafa verið lausir í nær hálft ár og segir í yfirlýsingunni að enn hafi viðsemjendur ekki fengist til að ræða launakröfur félaganna.

„Aðildarfélög Bandalags háskólamanna krefjast þess að viðsemjendur – íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg – hefji án tafar raunverulegt samtal við félögin um launalið nýrra kjarasamninga. Nú hafa samningar verið lausir í næstum hálft ár og enn hafa viðsemjendur ekki fengist til að ræða sanngjarnar launakröfur félaganna. Við viljum að háskólamenntun skili einstaklingum ávinningi. Það er miður að viðsemjendur hafa til þessa ekki boðið okkur annað en kjararýrnun í formi krónutöluhækkana og skerðingar þegar áunninna réttinda,“ segir í yfirlýsing BHM.

Aðildarfélög BHM eru Dýralæknafélag Íslands, Félag geislafræðinga, Félag háskólakennara,

Félag háskólakennara á Akureyri, Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra hljómlistarmanna (Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands), Félag íslenskra leikara, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag lífeindafræðinga, Félag prófessora við ríkisháskóla, Félag sjúkraþjálfara, Félagsráðgjafafélag Íslands, Fræðagarður, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands,Sálfræðingafélag Íslands, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga, Þroskaþjálfafélag Íslands.