Formenn Bandalags háskólamanna (BHM) og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) munu í kjaraviðræðunum í haust fara fram á að laun félagsmanna sinna verði leiðrétt með tilliti til vísitöluþróunar frá efnahagshruninu haustið 2008. Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í morgun. Þar kemur fram að með kröfunni sé vísað til sambærilegrar kröfu Félags forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) sem krefst 10-20% hækkunar til að vega á móti frystingu launa eftir hrunið.

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir í samtali við Morgunblaðið að starfsmenn ríkisstofnana geri sömu launakröfur og yfirmenn þeirra hjá sömu stofnunum.