Launhækkun Björns Zoëga , forstjóra Landspítalans (LSH), sannar að laun háskólamenntaðra sérfræðinga hjá ríkinu standast ekki samanburð, hvorki við sambærileg störf á almennum vinnumarkaði né þegar horft er til nágrannalanda. Þetta er mat stjórnar Bandalags háskólamanna (BHM). Hún vill að stjórnvöld bæti launakjör sérfræðinga í opinberum störfum og færi þau nær því að vera samanburðarhæf.

Eins og áður hefur komið fram hækkaði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra laun Björn Zoëga um 450 þúsund krónur eftir að honum var boðin staða forstjóra hjá stórum spítala í Svíþjóð. Launin fóru við það úr 1,9 milljónum króna í um 2,3 milljónir á mánuði.

Stjórn BHM hefur sent frá sér yfirlýsingu sem í segir:

„Samdráttur í ríkisrekstri undanfarin ár, fækkun starfsfólks, aukið álag og launafrystingar hafa dregið mjög úr aðdráttarafli ríkisins sem vinnustaðar fyrir háskólamenntaða sérfræðinga. Starfsfólk hefur sýnt gífurleg þolgæði við erfiðar aðstæður og ekki er lengur hægt að ætlast til þess að verkefni og álag aukist en laun standi í stað eða lækki. Því er það gleðiefni að velferðarráðherra hafi séð ástæðu til að launa sérstaklega þau verk sem hann taldi falla utan starfslýsingar forstjóra LSH. Dæmin um slíkt eru óteljandi og er stjórn BHM því fyllilega fylgjandi að vinnuframlagi umfram starfslýsingu sé mætt með aukagreiðslum.

Í kjarasamningum BHM við ríkið frá árinu 2011 sammæltust aðilar um að endurskoða launakerfi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna í þeim tilgangi að gera ríkið að samkeppnishæfum og eftirsóknarverðum vinnustað. Sú vinna er nú langt á eftir áætlun.

Í yfirlýsingu sem fylgir umræddum kjarasamningi, lýstu forsætis- og fjármálaráðherra vilja stjórnvalda til að meta með markvissum hætti líðan og heilsu starfsfólks ríkisins í kjölfar álags vegna niðurskurðar og samdráttar eftir hrun. Ekki vottar enn fyrir upphafi þess starfs þrátt fyrir umleitanir af hálfu BHM.

Stjórn BHM krefst þess að stjórnvöld standi við bókanir og yfirlýsingar með kjarasamningum og sýni þannig í verki þann vilja sinn að gera ríkið að aðlaðandi vinnustað fyrir háskólamenntað fólk.“