Hlutabréfamarkaðir bæði hækkuðu og lækkuðu í Bandaríkjunum í dag á annars rólegum degi að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Nasdaq vísitalan lækkaði um 0,4% en Dow Jones hækkaði um 0,5% og S&P 500 um 0,1%.

Það voru helst fjármála- og orkufyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins en olíuverð hækkaði í dag um 5,1% og við lok markaða í New York kostaði tunnan af hráolíu 45,8 dali.