Alþingi samþykkti í kvöld 12,5% hækkun á bifreiðagjaldi, vörugjaldi af bensíni, olíugjaldi og kílómetragjaldi. Í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í haust var reiknað með 11,5% hækkun á framangreindum gjöldum.

Frumvarpið var samþykkt með 30 atkvæðum gegn einu atkvæði Grétars Mars Jónssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins.