Háskólinn á Bifröst hyggst koma til móts við óskir menntamálaráðherra um aukið námsframboð í sumar og verður skólinn því opnaður öllum með sumarnámskeiðum frá 18. maí til 3. júlí í fjarnámi. Geta því nýnemar hafið háskólanám strax í maí í stað þess að bíða til hausts, sem og þeir sem ekki hafa lokið stúdentsprófi í Háskólabrú.

Háskólinn á Bifröst hefur reynslu af kennslu í gegnum fjarnám í 20 ár og býður nú nám í sumarnámskeiðum sem verða að þessu sinni einnig opin fyrir aðra en nemendur skólans. Þanig verður mögulegt að hefja formlegt nám í skólanum á sumarönn, bæði í háskólanámi og í Háskólagátt.

Allt nám í Háskólanum á Bifröst er kennt í fjarnámi sem gefur nemendum mikinn sveigjanleika og hefur sýnt sig að skila nemendum góðum árangri. Kennsla á sumarönn í Háskólanum á Bifröst hefur verið mikilvægur þáttur í skólastarfinu sem hefur gefið nemendum skólans í grunnnámi færi á að ljúka námi á styttri tíma.

Menntamálaráðherra hefur nú kallað sérstaklega eftir því við háskóla landsins að nemendum verði gefinn kostur á námi í sumar vegna fyrirséðra erfiðleika í atvinnulífinu. Háskólinn á Bifröst segist vera í einstakri aðstöðu til að koma til móts við þessar óskir með auknu framboði á námskeiðum á sumarönn og opnar jafnframt skólann öðrum en núverandi nemendum skólans.

Þannig er nú hægt að innritast formlega í grunnám, meistaranám eða Háskólagátt strax á sumarönn og hraða þannig námsframvindu eins og við getur átt. Námskeið kennd í grunnnámi eða meistaranámi gefa ECTS einingar í háskólanámi og námskeið í Háskólagátt gefa FEIN einingar í framhaldsskólanámi.

Allar þessar einingar í námi á Bifröst má flytja milli skóla eftir því sem tilheyrir hverri námsgrein og samkvæmt reglum viðkomandi skóla um mat á námi úr öðrum skólum. Þannig geta námsmenn í öðrum skólum hraðað námsframvindu sinni með námi á sumarönn á Bifröst.

Námskeið í Háskólanum á Bifröst eru í viðskiptafræði, lögfræði og félagsvísindum og skólinn er viðskiptaháskóli. Háskólagáttin býður upp á aðfararnám á framhaldsskólastigi fyrir þá nemendur sem ekki hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi til inngöngu í háskóla.

Námskeiðin á sumarönn hafa fyrst og fremst verið valnámskeið í grunnnámi og viðbótarnámskeið í Háskólagátt til að uppfylla sérstakar kröfur í stærðfræði, íslensku eða ensku. Í sumar verður bætt við fleiri valnámskeiðum í grunnnáminu, ný valnámskeið boðin fram í meistaranáminu og sérstök námskeið verða í boði fyrir nemendur sem vilja hefja nám í Háskólagátt.

Einstök námskeið eru kynnt sérstaklega á heimasíðu Háskólans á Bifröst og þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um námið.
Opið er fyrir umsóknir vegna sumarannar fram til 4. maí.  Umsóknafrestir fyrir haustönn eru 20. maí í meistaranámi og 15. júní í grunnnámi og Háskólagátt.