Sala á nýjum bílum á Spáni jókst um 15% í nóvember síðastliðnum en alls voru nýskráðir 55.450 fólksbílar þar í landi í mánuðinum. Spænska bílgreinasambandið Anfac þakkar því sérstökum aðgerðum ríkisstjórnarinnar þar í landi til að fækka gömlum, óöruggum og mengandi bílum í umferð. Aðgerðirnar eru kallaðar „bílaförgun með aðstoð stjórnvalda.“

Sala á nýjum bílum á Spáni í október jókst um 34% vegna þessara aðgerða en eftirgjöf er á gjöldum ef 7-10 ára gömlum bíl er fargað og nýr sparneytnari bíll keyptur í staðinn. Haft er eftir Soraya Saenz de Santamaria, aðstoðarforsætisráðherra Spánar, í þarlendum fjölmiðlum að þetta sé í þriðja sinn sem þessi leið sé farin á stuttum tíma og að hún hafi skilað út 300.000 gömlum, eyðslufrekum bílum í stað nýrri og sparneytnari bílar.

Aðgerðirnar miða að því að auka hagvöxt í landinu og koma til móts við almenning og auðvelda fólki að skipta í nýjan bíl. Á fyrstu 11 mánuðum ársins hefur bílasala aukist um 2% eða alls hafa verið nýskráðir 662.188 bílar að sögn spænska bílgreinasambandsins  og reikna menn með að fjöldinn verði kominn í 720.000 þegar árið er liðið. Þess má geta að meðalaldur fólksbíla hér á landi er komin yfir 12 ár og eldist enn frekar enda um 5,4% samdráttur í nýskráningum á fyrstu 11 mánuðum ársins samanborðið við sama tímabil ársins 2012.