Í október varð 22,6% aukning í bílasölu samanborið við sama mánuð árið 2016, en alls voru skráðir 1.114 nýir fólksbílar í mánuðinum. Ef allt árið er tekið til og með 31. október síðastliðnum er aukning í nýskráðum fólksbílum 15,1% en skráðir hafa verið 19.375 fólksbílar sem er aukning um 2541 bíl frá fyrra ári.

Hlutfall bílaleigubíla í nýskráningum fólksbíla á árinu er 40,2%  af heildinni á þessum fyrstu 10 mánuðum ársins. Söluhæsti bíllinn það sem af er ári er Toyota Yaris en alls hafa verið nýskráðir 721 bílar af þeirri gerð. Í öðru sæti kemur Toyota Rav4 með 631 nýskráningar og í því fjórða Kia Rio með 574 skráningar.

Ljóst er að bílasala mun slá fyrri met á þessu ári og fara vel yfir 20.000 nýskráða fólksbíla að því er fram kemur í fréttatilkynningu um málið frá Bílgreinasambandinu. Hver endanlega niðurstaða verður fer mikið eftir því hvað bílaleigur munu gera fyrir áramót en fyrirhugaðar eru breytingar á vörugjöldum bílaleigubíla sem mun hafa einhver áhrif á þann fjölda sem verður skráður á þessu ári.