Höldur-Bílaleiga Akureyrar og Suzuki bílaumboðið á Íslandi hafa skrifað undir kaup bílaleigunnar á að minnsta kosti 175 nýjum bílum af tegundunum Suzuki Swift og Suzuki Grand Vitara og hugsanlega verður bílunum fjölgað eitthvað þegar nær dregur sumri.  Bílaleiga Akureyrar  er stærsta bílaleiga landsins og mun verða með uppundir 2.300  bíla í rekstri  í sumar.

,,Við höfum átt mikil og ánægjuleg  viðskipti við Suzuki umboðið undanfarin ár, bílarnir hafa reynst vel og viðskiptavinir okkar ánægðir með þá og því er það gleðiefni að tryggja þessi kaup núna fyrir komandi ferðamannavertíð sem stefnir í að verða nokkuð góð þó svo enn sé full snemmt að spá endanlega til  um það” sagði Steingrímur Birgisson Forstjóri Bílaleigu Akureyrar þegar samningar voru undirritaðir.

Úlfar Hinriksson forstjóri Suzuki bíla hf sagði í tilkynningu að: ,,Suzuki og Bílaleiga Akureyrar hefðu átt góð og ánægjuleg viðskipti í yfir 20 ár og benti á að þau hefðu meðal annars stuðlað að því að Suzuki Swift var söluhæsti fólksbíllinn á Íslandi árið 2009 og Suzuki Grand Vitara söluhæsti jeppinn."

Bílaleiga Akureyrar er með 18 afgreiðslur á 14 stöðum  víðsvegar um landið,  stærstu afgreiðslurnar eru  í Reykjavík og Keflavík en höfuðstöðvarnar  eru á Akureyri og hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 100 manns.