Íslenskar bílaleigur hafa gengið frá samningum um kaup á 409 Toyota bifreiðum það sem af er árinu. Bílarnir eru væntanlegir til landsins á næstu vikum og verður afhendingu lokið fyrir sumarvertíðina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Toyota.
Sala á Toyotabifreiðum til bílaleiga er umtalsvert meiri í ár en í fyrra. Árið 2010 voru 318 Toyotabifreiðar skráðar sem bílaleigubílar og er aukningin milli ára því 28,6%, segir í tilkynningunni.
Flestir bílarnir eru af Yaris, Auris og Land Cruiser gerð en annars skiptast kaup bílaleiganna á Toyota þannig eftir gerðum:
Yaris 140
Auris 75
Corolla 26
Avensis 15
Verso 5
Rav4 59
Land Cruiser 79
Hilux 7
Hiace 3
Alls: 409