Toyota var með flesta selda bíla á síðasta ári en þar á eftir kom Suzuki. Tölur frá Bílgreinasambandinu sýna nokkuð breytta mynd frá innflutningi liðinna ára enda er hann ekki nema 16,7% af meðaltali síðustu 10 ára og 10,7% af innflutningnum 2005 en athygli vekur að Suzuki er í öðru sæti og er með lang minnstan samdrátt milli ára.

Ef litið er á einstakar undirtegundir er mest flutt inn af Suzuki Swift eða 151 bíll, af Subaru Legacy 122 bílar, Toyota Yaris 62 bílar og ef skoðaðir eru jeppar þá er mest flutt inn af Suzuki Grand Vitara eða 115 bílar, Nissan Patrol GR 56 bílar og af Toyota Land Cruiser 120 eru líka fluttir inn 56 bílar samkvæmt tölum Umferðastofu.

Fleira má sjá í þessum tölum eins og að um 1/3 nýrra fólksbifreiða eru díselbílar og um 2/3 bensín en aðeins um 30 eru með aðra orkugjafa. Einnig að um 1/2 er fjórhjóladrifinn.