Bílasala á árinu 2020 fer nokkuð rólega af stað en í janúar seldust 709 nýir fólksbílar miðað við 846 bíla í janúar 2019. Er það því 16,2% samdráttur milli mánaða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bílgreinasambandinu.

Bílgreinasambandið hefur hinsvegar spáð því að í heildina muni salan aukast um 10% á árinu og verði þannig 12.750 fólksbílar þegar upp er staðið. Er í þeirri spá gert ráð fyrir að vöxturinn muni fyrst og fremst verða í vor og á seinnihluta ársins.

Í tilkynningunni segir að töluverður fjöldi nýorkubíla hafi verið seldur í janúar eða um 52,2%. Þar af hafi 18,9% af sölu nýrra fólksbíla verið tengiltvinnbílar, rafmagnsbílar 18,5%, hybrid 13,7% og metan 1,1%.

„Meðalaldur fólksbílaflotans er um 12,3 ár (og hefur farið hækkandi) sem í sjálfu sér kallar á endurnýjun. Þá er eyðsla og mengun bíla með hefðbundnum orkugjöfum sífellt að fara lækkandi ásamt því sem úrval og drægni bæði rafmagns- og tengiltvinnbíla er að aukast og mun það halda áfram vel inn á árið 2020. Þetta ætti að leiða til þess að fleiri einstaklingar og fyrirtæki finni sér valkost sem hentar þeim auk þess sem nú er loks búið að eyða óvissu um hvort vistvænir bílar njóti áfram ívilnana við kaup. Þá er einnig líklegt að bílaleigur þurfi að halda áfram að endurnýja flotann sinn þar sem hann hefur elst á síðustu misserum,“ segir í tilkynningunni.