Sala nýrra bíla hjá BL hefur aukist það sem af er árinu og er eftir apríl komin í 1.818 bíla samanborið við 943 bíla á sama tíma í fyrra. Markaðshlutdeild fyrirtækisins á fólks- og sendibílamarkaði hefur einnig aukist og nemur nú 28 prósentum það sem af er árinu.

Hjá Samgöngustofu voru alls skráðir 2.470 fólks- og sendibílar í aprílmánuði, 979 fleiri en í mars þegar skráður var 1.491 bíll. Skráðir bílaleigubílar eru 73% fleiri fyrstu fjóra mánuði ársins en á sama tímabili 2015, alls 2.716, þar af 1.229 í apríl.

Sé litið til bílamerkja BL fyrstu fjóra mánuði ársins var salan 93% meiri en á sama tíma 2015. Toyota er í öðru sæti yfir árið með 17,2% og Hekla í því þriðja með 16,4% hlutdeild.