Bílasala í Evrópu jókst um 4,6% í Evrópu. Þetta er í fyrsta sinn í tvö ár sem bílasala eykst tvo mánuði í röð.

1,04 milljónir bíla seldust í Evrópu í október, segir Evrópusamband bílaframleiðanda í tilkynningu. Salan jókst um 5,5% í september.

Bílasala hafði dregist saman á evrusvæðinu sex ársfjórðunga í röð en svo snerist dæmið við á öðrum fjórðungi í ár, að því er Business Week greinir frá.