Sala a nýjum fólksbílum jókst um 26,5% í febrúar samanborið við sama mánuð í fyrra. Nýskráðir bílar voru 632 sem er aukning um 137 bíla milli ára. Þar af voru 202 bílaleigubílar eða 32% af heildarnýskráningum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bílgreinasambandinu.

„Hlutfall bílaleigubíla hefur minkað í heildarskráningum þó enn séu þeir stór hluti af nýskráningum fólksbíla. Eftirspurn eftir bílaleigubílum eykst að sama skapi og fjöldi ferðamanna eykst sem og tímabilið er ekki lengur aðeins bundið við sumarmánuðina þó svo eftirspurnin sé mest á þeim tíma.

Hins vegar hefur sala til einstaklinga og fyrirtækja verið að aukast bæði á síðasta ári sem og það sem af er þessu ári. Reiknum við með því að hlutur einstaklinga í heildarsölu eigi eftir að aukast töluvert á þessu ári þar sem þörfin á nýjum bílum á göturnar er mikil og gamlir bílar að ganga úr sér enda óhagkvæmir og óöruggir segir,“ Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.