Sala nýrra fólksbíla í desember 2019 var 587 bílar samanborið við 482 bíla í desember 2018. Salan í desember jókst því um 22% miðað við desember 2018. Er þetta í fyrsta sinn síðan í janúar 2018 sem söluaukning í stökum mánuði á sér stað á milli ára að því er fram kemur í nýjum tölum frá Bílgreinasambandinu.

Í heildina seldust 11.728 nýir fólksbílar á árinu 2019 samanborið við 17.976 bíla á árinu 2018. Salan 2019 var því í heildina 34,8% minni en á árinu 2018. Frá aldamótum hafa að meðaltali selst 11.400 bílar á ári og var salan 2019 því yfir meðaltali þrátt fyrir að vera minni en síðustu ár. Árin 2016, 2017 og 2018 voru stór í sögulegu samhengi.

Toyota söluhæst með nálægt fimmtung nýrra bíla

Toyota var söluhæsta vörumerkið á árinu með 16,8 % hlutfall sölunnar, þar á eftir fylgdu KIA með 12,6 % og Hyundai með 6,8%. Hlutfall vistvænna bíla (rafmagn, tengiltvinn, hybrid, metan) var 27,5% af heildarsölunni, miðað við 20,7 % árið 2018 og 15,2 % árið 2017.

41,5 % nýskráninga 2019 voru bílaleigubílar en 57,5% voru bílar í almenna notkun. Þessi hlutföll eru í takti við fyrri ár.
Bílgreinasambandið spáir því að um 12.750 nýir fólksbílar muni seljast á næsta ári sem verður þá tæplega 9% aukning frá 2019.

Söluaukning þegar leið á árið

Þrátt fyrir samdrátt í sölu nýrra bíla um 34,8% á milli ára má segja að samanburðurinn milli ára hafi farið batnandi eftir því sem leið á árið. Í desember varð til að mynda 22,0% söluaukning þegar 587 bílar seldust borið saman við 482 bíla í desember 2018 og er þetta í fyrsta skipti í næstum 2 ár þar sem söluaukning verður í einstökum mánuðum á milli ára.

Ef horft er lengra aftur í tímann og salan skoðuð frá aldamótum þá hafa eins og áður segir 11.400 fólksbílar selst að meðaltali á ári og salan 2019 er því rétt yfir meðaltalinu. Einnig má hafa í huga að árin 2016-2018 voru mjög stór bílasöluár í sögulegu samhengi og því víst að samanburðurinn við þau yrði alltaf erfiður þó ekki hafi verið búist við alveg eins miklum samdrætti og raun ber vitni.

Reyndar þarf líka að horfa til þess að fólksfjölgun hefur átt sér stað í landinu frá aldamótum sem ætti að hafa þær afleiðingar að meðaltal bílasölu þyrfti að hækka og sennilega vera nokkuð yfir 12.000 bílum. Þetta sýnir sig m.a. í því að meðalaldur bílaflotans fer enn hækkandi hér á landi og er í dag 12,3 ár á meðan meðalaldurinn í Evrópusambandinu er 10,8 ár.

Endanlegar sölutölur fyrir árið 2019 frá Evrópu liggja ekki enn fyrir en miðað við stöðuna í lok nóvember þá mun 2019 líklegast enda nokkurn veginn á pari við 2018.

Bílaleigur keyptu yfir 40% bílanna

Af þeim 11.728 sem seldust á árinu þá keyptu bílaleigur 4.866 bíla eða 41,5% hlutfall. Hlutfallið er í takti við flest ár frá 2009 þegar bílaleiguflotinn fór stækkandi vegna fjölgunar ferðamanna en bílaleigur hafa að meðaltali keypt um 42,6% allra nýrra bíla síðan þá.

Bílaleiguflotinn telur hátt í 25.000 bíla og þarf hann að vera svo stór til að taka á móti þeim fjölda ferðamanna sem koma til landsins á hverju ári. Það liggur því fyrir að endurnýjunarþörfin á þessum hluta flotans á hverju ári er mikil og því viðbúið að bílaleigur skipi áfram stóran sess í kaupum á nýjum bílum á næstu árum.

Nærri 28% seldra bíla vistvænir

Hlutfall vistvænna bíla (rafmagn, tengiltvinn, hybrid, metan) hélt áfram að aukast og hefur hlutfall þeirra af heildarsölu aldrei verið hærra eða 27,5%. Fara þar tengiltvinnbílar fremstir í flokki með um 10,3% sölunnar, hybrid bílar um 8,9% og rafmagnsbílar um 7,8%. Eru þetta hlutfallstölur sem eru fáheyrðar annarsstaðar í heiminum fyrir utan Noreg og telur Bílgreinasambandið líklegt að Ísland verði áfram í fararbroddi.

Það er ef horft er til framlengingar á ívilnunum við kaup á slíkum bílum því í nefndaráliti Efnahags- og viðskiptanefndar er tekið undir tillögur sambandsins um að framlengja ívilnanir vegna tengiltvinnbíla til 2023 í stað þess að fella þær niður með öllu í lok 2020 eins og stefndi í. Segir sambandið dæmi erlendis frá hafa sýnt að slíkt hefur hægt verulega á sölu þessarar tegundar bíla.

Spá sölu nálægt 13 þúsund nýrri bíla á árinu

Bílgreinasambandið telur að ýmsar ástæður hafi verið fyrir því að niðursveiflan 2019 hafi verið meiri en búist var við á árinu 2019 og jafnframt að ýmsar forsendur séu til staðar til að salan taki aftur við sér og aukist að nýju. Eyðsla og mengun bíla með hefðbundnum orkugjöfum fer sífellt lækkandi ásamt því sem úrval og drægni bæði rafmagns- og tengiltvinnbíla er að aukast og mun það halda áfram á árinu 2020.

Þetta ætti að leiða til þess að fleiri einstaklingar og fyrirtæki finni sér valkost sem hentar þeim auk þess sem búið er að eyða óvissu um hvort vistvænir bílar njóti áfram ívilnana við kaup. Þá er einnig líklegt að bílaleigur þurfi að halda áfram að endurnýja flotann sinn þar sem hann hefur elst á síðustu misserum.

Meðalaldur fólksbílaflotans er einnig að hækka en stórir árgangar í bílaflotanum eru komnir á meðalaldur sem í fyrra var 12,3 ár og fer hækkandi. Bílgreinasambandið spáir því að 12.750 bílar seljist á árinu 2020 en gerir það 8,7% söluaukningu frá árinu 2019.