Í nóvember jókst bílasala um 20,4% ef borið er saman við sama mánuð í fyrra, og voru nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili 955 á móti 793 í sama mánuði á síðasta ári.

Er það aukning um 162 bíla, en samtals hafa verið skráðir 17.808 fólksbílar það sem af er árinu, sem er 35% aukning frá fyrra ári.

Helmingurinn bílaleigubílar

Bílaleigubílar eru nú sem fyrr stór hluti af nýskráningum eða 8.696 stykki sem gera um 49% af heildinni á þessum 11 mánuðum ársins.

Ört vaxandi fjöldi ferðamanna til landsins kallar á aukinn fjölda bílaleigubíla. Þetta kemur fram í frétt frá Bílgreinasambandinu.