Hekla hf. hefur sett upp sérstakan vef sem ætlaður er kaupendum notaðra bíla í Evrópu frá Íslandi.

Vefurinn heitir nordiccarsale.is og býr yfir fullkomnu leitarforriti á ensku.

Hekla býður notaða bíla til kaups á eðlilegu markaðsverði en þar sem gengi krónunnar er í lægstu lægð telur fyrirtækið sig geta selt þá úr landi.

Hekla býður upp á ókeypis flutning á sex áfangastaði, þ.e. Immingham, Varberg, Cuxhaven, Osló, Árrósa og Rotterdam.

Kaupendur þurfa sjálfur að greiða fyrir flutningstryggingu og kostnað við affermingu.