Bílasala á Íslandi meira en tvöfaldaðist milli ára í mars en samdráttur varð í sölu bíla í Evrópusambandinu. Samdráttur varð í sölu bíla í 17 af 27 löndum Evrópusambandsins í mars og jókst salan í 10 löndum.

Salan jókst á Íslandi um 108% milli ára í mars og næst á eftir Íslandi jókst salan í Finnlandi um 82% og í Eistlandi og í Rúmeníu um tæp 30%. Mestur samdráttur í bílasölu í mars var rúm 40% í Grikklandi og tæp 30% á Ítalíu.