Bílgreinasambandið og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu eru komin í samstarf þar sem markmiðið er að efla þjónustu við félagsmenn í samskiptum við stjórnvöld, í lögfræðilegum álitamálum og í fræðslu- og menntunarmálum ásamt því að styrkja rekstur beggja samtaka.

Samstarfið hófst í gær með undirritun forsvarsmanna félaganna tveggja, þeirra Maríu Jónu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins, og  Andrési Magnússyni, framkvæmdastjóra SVÞ á samstarfsyfirlýsingu félaganna.

Í tilkynningu er nefnt sem ástæða samvinnunnar að rekstrarumhverfi fyrirtækja í bílgreininni og í verslun og þjónustu verði sífellt flóknara með auknum kröfum af margvíslegu tagi sem m.a. leiði til aukinna samskipta við stjórnsýsluna. Samvinnunni er ætlað að efla þessi samskipti, auka þjónustu og upplýsingagjöf og vera til mikillar hagræðingar fyrir félagsmenn.

Hún er ekki síður sögð hagræðing fyrir stjórnsýsluna sem þarf þá að taka við færri umsögnum sem oftar en ekki eru efnislega sambærilegar. Sífellt hraðari tækniþróun kalli jafnframt á aukna fræðslu og menntun sem samtökin geta eflt enn frekar með samvinnu.

Miklar væntingar til samstarfsins

„Það eru klárlega samlegðaráhrif á fjölmörgum sviðum sem gerir samtökunum kleift að vinna enn betur fyrir félagsmenn sína,” segir María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.

„Samskipti við stjórnsýsluna verða markvissari og öflugri, félagsmenn Bílgreinasambandsins munu njóta góðs af aðgengi að fræðsludagskrá SVÞ, enda er eðli bílgreinarinnar í raun verslun og þjónusta, og hagræðing í rekstrarkostnaði samtakanna er augljós. Við væntum mikils af þessu samstarfi.“

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, fagnar samstarfinu, enda ljóst að með því verði samtökin enn sterkara hagsmunaafl fyrir félagsmenn sína.

„Hagsmunir þessara greina fara að langmestu leyti saman og í ljósi þess fögnum við þessum samstarfi og vonumst til að geta þróað það áfram enn frekar,” segir Andrés.