Chelsea Clinton, dóttir Bills Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra, er með barni. Hún tilkynnti þetta þegar hún hélt ræðu í New York á fimmtudaginn þar sem móðir hennar stóð við hlið hennar.

„Ég og Marc gleðjumst mjög því að við eigum von á okkar fyrsta barni síðar á þessu ári,‟ sagði Chelsea Clinton í ræðunni sem var haldinn á kvöldverði sem efnt var til fyrir ungar konur.

Chelsea sagði ekki hvort hún og eiginmaður hennar, Marc Mezvinsky, ætu von á dreng eða stúlku.

Fox news greindi frá.