Gamanleikarinn Bill Cosby hefur í huga að gera nýja sjónvarpsþætti fyrir NBC sjónvarpsstöðina. Cosby var einn vinsælasti leikari heims um áraraðir þegar þættir hans Cosby fjölskyldan naut mikillar hylli. Cosby er í dag 76 ára gamall en alls ekki dauður úr öllum æðum.

Ef nýju þættirnir verða að veruleika þá munu þeir fjalla um foreldrahlutverkið og hjónabandið, líkt og gömlu þættirnir. NBC hefur ekki skrifað undir samning um gerð þáttaraðar eða jafnvel prufuþáttar. Cosby er hins vegar farinn að vinna með handritahöfundum að nýjum þætti.

Þótt efnistök nýja þáttarins yrðu svipuð og í gömlu Cosby þáttunum, segir Bill Cosby sjálfur að hann sé ekki að reyna að endurgera gömlu þættina.

Wall Street Journal greindi frá.