Bill Gates, stofnandi Microsoft, hefur aftur náð toppsætinu á lista yfir ríkustu menn í heimi. Eignir Gates eru 76 milljarðar dala í ár, eða rétt rúmlega 8500 milljónir dala. Þær voru 67 milljarðar dala í fyrra.

Auðjöfurinn Carlos Slim var í fyrsta sæti í fyrra en er nú í öðru sæti. Milljarðamæringarnir voru 1645 talsins á lista Forbes.

Á síðustu 20 árum hefur Gates fimmtán sinnum verið á toppnum á listanum yfir ríkustu menn.