Bill Gates, ríkasti maður heims, er á leið til Íslands og mun dvelja í sumarbústað á Suðurlandi ásamt fjölskyldu sinni í nokkra daga. Þetta kemur fram á Vísi .

Gates stofnaði á sínum tíma hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft og hefur hann að mestu leyti verið ríkasti maður heims undanfarin 20 ár. Er hann metinn á 79,2 milljarða dollara samkvæmt Forbes tímaritinu.

Í frétt Vísis kemur fram að fylgdarlið Gates, lífverðir, matreiðslumeistarar og þjónar komi til landsins í dag til að undirbúa komu hans. Mun hann nýta tímann á Íslandi til að skoða helstu náttúruperlur landsins í þyrlu og þar að auki mun hann heimsækja nokkra staði á Suðurlandi og jafnvel víða.

Þetta er annað árið í röð sem Bill Gates kemur til Íslands, en hann var viðstaddur tónleika Justin Timberlake í Kórnum síðasta sumar. Má gera ráð fyrir því að hann hafi heillast af landi og þjóð og viljað skoða meira.