Bill Clinton gerði grín að athugasemdum sem Repúblikaninn Karl Rove hefur gert við heilsufar eiginkonu hans.

Rove sagði fyrr í vikunni að Hillary þyrfti að útskýra betur þá atburðarrás sem varð þegar hún hné niður og fékk heilahristing árið 2012. Rove heldur því fram að hún hafi hlotið alvarlegan heilaskaða.

„Fyrst segja þeir að hún hafi gert sér upp heilahristinginn en núna segja þeir að hún sé að sækja um hlutverk í The Walking Dead,“ sagði Clinton á ráðstefnu um opinber fjármál.

Bill Clinton segir að það sé ekkert um heilsufar konunnar hans að segja. Hún sé væntanlega í betra líkamlega formi en hann sjálfur núna.

Fox News greindi frá.