Greiðendur hjá Íbúðalánasjóði munu ekki fá heimsenda greiðsluseðla fyrr en um miðjan mánuðinn vegna tæknilegrar bilunar.

Hins vegar verður hægt að nota eldri greiðsluseðla til að sækja upplýsingar til að greiða af gjalddaga vegna júnímánuðar í bankaútibúi. Einnig verður hægt að hringja í bankann, eða einfaldlega með því að fara í rafræn skjöl í heimabanka.

Loks bendir Íbúðalánasjóður á að hægt er að breyta fyrirkomulagi á greiðsluseðlum úr heimsendum yfir í rafrænan á vef stofnunarinnar.