Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ræða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra á Viðskiptaþingi í gær stangist á við upplýsingar sem finna megi á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins

Þetta kemur fram grein Birgis á fréttaskýringavefnum AMX.is en Jóhanna vék að endurreisn fjármálakerfisins í ræðu sinni þar sem hún sagði meðal annars:

„Eitt helsta viðfangsefni stjórnvalda nú er að koma fjármálakerfi landsins í það horf að það geti stutt við heimilin og fyrirtækin í landinu. Þar hefur vel miðað síðustu vikur og ég er bjartsýn á að bankarnir í landinu verði orðnir vel starfhæfir innan einungis fárra vikna. Við vitum að bankar eins og önnur fyrirtæki þurfa að byggja ákvarðanir sínar á traustum upplýsingum um eigin stöðu,“ sagði Jóhanna í ræðu sinni.

„Mati á eignum nýju bankanna mun ljúka fyrir lok þessa mánaðar og það er vissulega mikilvægur áfangi. Samkvæmt áætlunum verður þetta mat síðan staðfest af óháðum ráðgjöfum um miðjan aprílmánuð og þar með verður skotið traustari stoðum undir starfsemi bankanna.

Það er síðan á grundvelli þessa mats sem ríkisstjórnin mun taka afstöðu til þess hversu miklum fjármunum bönkunum verða lagðir til þess að skapa þeim svigrúm til að veita þeim sem á þurfa að halda eðlilega fjármálaþjónustu. Samkvæmt áætlunum er stefnt að því að endurfjármögnun bankanna verði lokið síðari hluta næsta mánaðar.“

Birgir segir í grein sinni að af ummælum forsætisráðherra megi ráða að endurskipulagningunni verði lokið í næsta mánuði, en samkvæmt ákvörðunum FME séu veitti frestir fram yfir miðjan maí til að ljúka skilmálum við fjármálagerninga, sem eru forsenda þessa verkefnis.

Þá segir Birgir að þessi ummæli stangist í veigamiklum atriðum á við upplýsingar um þessi efni, sem finna megi á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar sé að finna ákvarðanir stofnunarinnar frá 6. mars. sl. um breytingu fyrri ákvarðana um tímafresti í sambandi við uppgjör milli gömlu og nýju bankanna. Þar er gefinn frestur til 18. maí varðandi skilmála þeirra fjármálagerninga sem nauðsynlegir eru til að ljúka frágangi þessara mála eftir að niðurstöður matsaðila liggja fyrir.

„Því verður vart trúað að forsætisráðherra hafi vísvitandi verið að gefa rangar upplýsingar á Viðskiptaþingi,“ segir Birgir.

„Hins vegar er ekki hægt að draga aðra ályktun en þá að innan stjórnkerfisins viti hægri höndin ekki hvað sú vinstri er að gjöra og að forsætisráðherra hafi ekki upplýsingar um veigamiklar ákvarðanir FME í afar brýnum og mikilvægum málum. Slíkt væri mjög alvarlegt reynist það rétt. Mér finnst skipta miklu máli að þetta mál fáist á hreint, enda er endurskipulagning bankakerfisins forsenda fyrir svo mörgu sem gera þarf í efnahags- og atvinnumálum á næstunni.“

Birgir segir að mikilvægt sé að kallað verði eftir upplýsingum um það hvort þessum verkefnum verði lokið fyrir lok næsta mánaðar eins og forsætisráðherra segir, eða í seinni hluta maímánaðar eða síðar, eins og ráða má af ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins.