Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað Birgi Jakobsson í embætti landlæknis frá 1. janúar næstkomandi. Birgir hefur  sinnt stjórnunarstörfum við ýmis sjúkrahús í Svíþjóð, síðast sem forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Hann tekur við embættinu af Geir Gunnlaugssyni, sem hefur sinnt því síðustu fimm ár.

„Fimm umsóknir bárust um embætti landlæknis en umsóknarfrestur rann út 31. október síðastliðinn," segir í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu. „Sérstök nefnd sem starfar á grundvelli 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu mat hæfni umsækjenda. Niðurstaða hennar var að tveir umsækjendanna væru hæfastir og var Birgir annar þeirra."

Samkvæmt lögum skal landlæknir hafa sérfræðimenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar.

„Í umsögn hæfnisnefndar um Birgi kemur fram að hann hefur yfirgripsmikla stjórnunarreynslu af sjúkrahúsum í Svíþjóð sem stjórnandi á mismunandi stjórnunarstigum í 24 ár. Sérgrein Birgis er barnalækningar og árið 1988 lauk hann doktorsprófi við Karolinska Institutet. Hann gegndi um árabil yfirlæknisstöðu á barnadeild Huddinge sjúkrahússins í Stokkhólmi, árið 2003 tók hann við starfi sjúkrahússtjóra við Capio St. Görans sjúkrahússins í Stokkhólmi og frá árinu 2007 hefur hann verið forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi en þar er hann nýhættur störfum.

Hæfnisnefndin getur þess í umsögn sinni að Birgir hafi mikla reynslu af breytingastjórnun og hæfileika til að fá fólk til að vinna með sér að breytingum. Hann hafi m.a. verið í fararbroddi við endurskipulagningu og stefnumótun á sjúkrahúsþjónustu í Stokkhólmi og við sameiningu Karolinska og Huddinge sjúkrahúsanna og tekið þátt í umfangsmikilli stefnumótun tengdri þeirri saminingu.

Birgir á að baki nær aldarfjórðungs reynslu sem stjórnandi á stórum heilbrigðisstofnunum og hefur náð eftirtektarverðum árangri í þeim störfum sínum. Þá hefur hann verið virkur í fræðasamfélaginu og liggja eftir hann á þriðja tug greina í vísindatímaritum, segir m.a. í umsögn hæfnisnefndarinnar."