Birgir Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Iceland Express eftir að samkomulag var gert milli félagsins og Matthíasar Imsland um starfslok hans hjá félaginu. Birgir þekkir vel til starfsemi Iceland Express en hann var forstjóri félagsins á árunum 2004 til 2006.

Síðast liðin ár hefur Birgir starfað sem forstjóri Infopress Group sem er eitt stærsta prentfyrirtæki í Austur Evrópu.

„Ég hlakka til að takast á við nýtt verkefni með því frábæra starfsfólki sem er hjá Iceland Express og vinna með því að áframhaldandi uppbyggingu hjá félaginu. Ég mun leggja áherslu á að auka gæði þeirrar mikilvægu þjónustu sem félagið bíður upp á. Það verða gerðar ákveðnar breytingar á rekstrinum sem koma munu í ljós á næstu vikum og mánuðum,“ segir Birgir.