Birgir Már Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samson eignarhaldsfélags ehf. Birgir Már lauk embættisprófi í lögum frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 1999 og útskrifaðist með meistaragráðu í alþjóðlegum fjármagnsrétti frá lagadeild Harvard háskóla í Bandaríkjunum árið 2003.

Samson eignarhaldsfélags ehf. fer með um 45% eignarhlut í Landsbanka Íslands hf.