Birgir Stefánsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fagfjárfestateymis VÍB. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. „Birgir hefur að undanförnu starfað hjá Íslandssjóðum og var áður hjá EFG Asset Management í London þar sem hann stýrði uppbyggingu á vöruframboði bankans í framtakssjóðum. Birgir lauk meistaragráðu í fjármálum og alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Árósum 2006 og  er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 2002.

Katrín Oddsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Verðbréfa- og lífeyrisráðgjafar. Deildin ber ábyrgð á öllum dreifileiðum VÍB fyrir verðbréfa og lífeyrissparnað til almennra viðskiptavina.  Katrín hefur starfað hjá Íslandsbanka síðan 1998. Hún hefur meðal annars starfað hjá Mörkuðum og sem forstöðumaður hjá VÍB frá 2008. Katrín hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun og er hagfræðingur frá Háskóla Íslands 1998,“ segir í tilkynningunni.

Katrín Oddsdóttir - VÍB
Katrín Oddsdóttir - VÍB
© Aðsend mynd (AÐSEND)