Bílaumboðið Askja hefur ráðið tvo nýja starfsmenn. Það eru þeir Birgir Karl Óskarsson sem hefur verið ráðinn fjármálastjóri og Sigurður Sveinn Nikulásson sem hefur verið ráðinn sölustjóri varahluta.
Birgir ráðinn fjármálastjóri
Birgir er löggiltur endurskoðandi og hefur starfað lengst af hjá KPMG ehf sem endurskoðandi. Hann starfaði einnig hjá Capacent og Fjárvakri á árunum 2009-2012 og hjá ráðgjafarfyrirtækinu Akkúrat ehf. Birgir er með BS gráðu í viðskiptafræði frá HR og með gráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá HÍ.
Sigurður ráðinn sölustjóri
Sigurður hefur mikla reynslu úr bifreiðageiranum en hann starfaði áður hjá Heklu, Toyota og síðustu 8 ár hjá Bernhard þar sem gengdi stöðu innkaupa-, lager- og verslunarstjóra. Sigurður hefur einnig starfað sem skíðaþjálfari undanfarin 13 ár en hann var sjálfur í unglingalandsliði á skíðum. Þess má geta að Sigurður æfði íslenska glímu og er nýbúinn að ljúka Iron Man keppni í Austurríki.