Birgir Örn Guðjónsson er nýkjörinn formaður Samstöðu og tekur því við sem formaður af Lilju Mósesdóttir. Birgir var einn í framboði til formanns.

Fyrri degi á landsfundi flokksins lauk fyrir skömmu með kosningu formanns og tveggja varaformanna í stjórn flokksins. Varaformenn eru Pálmey H. Gísladóttir og Sigurbjörn Svavarsson.