Birgir Jónsson hefur tekið við starfi aðstoðarforstjóra WOW air. Birgir starfaði sem svæðisstjóri Össurar í Asíu á árunum 2001 -2004, sem forstjóri Iceland Express 2004-2006 og sem forstjóri Infopress Group sem er ein stærsta prentsmiðja í Evrópu, með starfsemi í þremur löndum, á árunum 2006 -2010. Frá 2010 hefur Birgir starfað sjálfstætt og sem tónlistarmaður, meðal annars sem trommari í þungarokkshjómsveitinni Dimmu.

Birgir hefur starfað hjá WOW air síðustu tvo mánuði sem ráðgjafi en tekur nú við sem aðstoðarforstjóri félagsins. Hann mun sjá um daglegan rekstur fyrirtækisins.

Birgir er rekstrarhagfræðingur og með MBA gráðu frá University of Westminster í Bretlandi.