Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt hefur stofnað nýtt félag sem ber heitið Foss fjárfestingafélag ehf. Auglýsing þess efnis birtist Lögbirtingablaðinu í vikunni. Skráðir stofnendur félagsins eru Pizza-Pizza ehf. og Eyja fjárfestingafélag ehf., en félögin eru í eigu Birgis.

Stjórnarmenn eru auk Birgis, kona hans Eygló Björk Kjartansdóttir og Birgir Örn Birgisson, framkvæmdastjóri Dominos. Ekki náðist í Birgi Þór við vinnslu fréttarinnar en að sögn Birgis Arnar er félagið stofnað sérstaklega vegna eignarhlutarins í Gló. Nú sér formlega verið að setja eignarhlutinn á Gló inn í Foss-félagið, en Birgir og kona hans keyptu helmingshlut í veitingakeðjunni á vormánuðum.