Fréttamaðurinn Birgir Olgeirsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í almannatengslum hjá flugfélaginu Play. Þetta kemur fram í frétt Vísis .

Þar kemur fram að Birgir láti af störfum um mánaðarmótin en Birgir er með þrettán ára reynslu af fjölmiðlastörfum og hefur starfað á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar síðustu sex ár, meðal annars við fréttaskýringaþáttinn Kompás.

Á meðal verkefna Birgis á nýjum slóðum er að kynna Play á erlendum mörkuðum, sjá um samskipti við almannatengslastofur og fjölmiðla ásamt því að taka þátt í markaðsstarfi félagsins.

Birgir er annar fréttamaðurinn sem Play sækir til fréttastofu Stöðvar 2, en Nadine Guðrún Yaghi var í sumar ráðin samskiptastjóri Play.