Birkir J. Jónsson.
Birkir J. Jónsson.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Birkir Jón Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, mun leiða lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor.

Fundur Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi staðfesti í gær einróma tillögu uppstillinganefndar að framboðslista flokksins. Mikill einhugur var á fundinum og stefnan sett hátt fyrir vorið.

Mikil endurnýjun er á lista flokksins í Kópavogi og skipar ungt fólk efstu sæti listans.

Fimm efstu sæti framboðslistans skipa:

1. Birkir Jón Jónsson, fyrrv. alþingismaður, 34 ára.
2. Sigurjón Jónsson, markaðsfræðingur og framkvæmdastjóri, 30 ára.
3. Guðrún Jónína Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lífstílsleiðbeinandi, 38 ára.
4. Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur, 56 ár.
5. Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, grunnskólakennari, 57 ára.