Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins mun leiða lista flokksins í Norðausturkjördæmi en Birkir Jón hlaut efsta sæti listans en kosið var um sætin á aukakjördæmisþingi sem haldið var á Egilsstöðum í gær en utankjörfundaratkvæðagreiðsla fór einnig fram á fjölmörgum stöðum í kjördæminu fyrir helgi.

Birkir Jón hlaut 505 atkvæði í fyrsta sæti en alls greiddu 928 atkvæði.

Alls gáfu fimmtán frambjóðendur kost á sér til framboðs í kjör um 8 efstu sæti framboðslista flokksins.

Röð átta efstu frambjóðendanna er sem hér segir:

  1. Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, með 505 atkvæði í 1. sæti.
  2. Höskuldur Þór Þórhallsson, alþingismaður, með 647 atkvæði í 1.-2. sæti.
  3. Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings, með 509 atkvæði í 1.-3. sæti.
  4. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri, með 340 atkvæði í 1.-4. sæti.
  5. Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi, með 448 atkvæði í 1.-5. sæti.
  6. Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa, með 463 atkvæði í 1.-6. sæti.
  7. Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður, með 497 atkvæði í 1.-7. sæti.
  8. Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari,með 397 atkvæði í 1.-8. sæti.