Þau Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair ehf., og Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Flugleiðahótela ehf., hafa tekið sæti í framkvæmdastjórn Icelandair Group. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til kauphallar síðastliðinn föstudag. Þar segir að síðan Sigþór Einarsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri, lét af störfum hafi aðeins forstjóri félagsins og framkvæmdastjóri fjármála setið í framkvæmdastjórn en nú hafi þau Birkir Hólm og Magnea bæst í hópinn. Björgólfur Jóhannsson er forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason er framkvæmdastjóri fjármála hjá samstæðunni.