Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir rekstur bankans hafa gengið vel á fyrri helmingi ársins og verið nokkuð í takt við áætlanir. Þannig hafi eiginfjárstaða bankans verið afar sterk og bankinn hafi þannig allar forsendur til að koma í auknum mæli að fjármögnun atvinnulífsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka en bankinn birti í dag árshlutauppgjör sitt þar sem fram kemur að hagnaður bankans eftir skatt nam á fyrri hluta þessa árs um 8,3 milljörðum króna.

Birna segir þó að vissulega hafi réttaróvissa um lögmæti og vaxtakjör lána í erlendri mynt sett mark sitt á uppgjörsvinnu bankans. Íslandsbanki hafi gert úttekt á hugsanlegum áhrifum ólíkra niðurstaðna í því máli.

„Sú úttekt leiðir í ljós að ef svo ólíklega fer að öll lán í erlendri mynt verði dæmd ólögleg getur höggið á eiginfjárgrunn bankans orðið verulegt,“ segir Birna.

„Verði það niðurstaðan mun Íslandsbanki eigi að síður vera með eiginfjárhlutfall yfir 12% sem er vel yfir lögbundnu lágmarki. Slík niðurstaða myndi þó skerða verulega möguleika bankans til að þjónusta heimili og fyrirtæki og veita fjármunum til fjárfestinga og þar með taka þátt í endurreisn atvinnulífsins.“