Birna Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála hjá Íslandsbanka.

Birna hefur undanfarin 6 ár starfað að markaðsmálum hjá Royal Bank of Scotland. Hún var markaðsstjóri Íslandsbanka á árunum frá 1994 - 1997 og um hríð einn af útibússtjórum bankans. Hún hefur jafnframt starfað sem markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins - Stöðvar 2 og Íslenskra getrauna.

Birna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Edinborg. Hún mun hefja störf hjá Íslandsbanka í byrjum september.