Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) hefur í tólfta sinn valið viðskiptafræðing eða hagfræðings ársins. FVH hefur valið Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, sem viðskiptafræðing ársins 2013.

Í tilkynningu segir að við valið hafi dómnefnd meðal annars horft til þess að Birna hefur leitt uppbyggingu Íslandsbanka frá endurreisn bankans í lok árs 2008. Mikið hafi mætt á íslenskum bönkunum sem hafa orðið að sníða stakk sinn að gjörbreyttum rekstri, minnka umfang starfseminnar, koma að endurreisn fjölmargra fyrirtækja, verða hluthafar í nokkrum fyrirtækjum í óskyldum rekstri, endurvekja tiltrú á íslenskum verðbréfamarkaði, endurútreikna gengislán, opna á ný fyrir erlendar lántökur íslenskra fjármálafyrirtækja og aðstoða fyrirtæki og einstaklinga við að endurskipuleggja sín fjármál. Það séu því ærin verkefni sem hafi verið á borðinu hjá Birnu undanfarin ár.

„Birna hefur verið góður fyrirliði þess liðs sem komið hefur að uppbyggingu Íslandsbanka. Góðir stjórnunarhæfileikar og leiðtogahæfni Birnu hafa komið vel í ljós á þessum erfiðu tímum og ágætur starfsandi hefur myndast innan bankans. Kannanir sýna ítrekað að bæði einstaklingar og fyrirtæki, telja bankann vera í fararbroddi og vera leiðandi í þjónustu í dag. Afkoma bankans hefur verið góð og hefur fyrirtækið uppskorið árangur þeirra miklu og góðu vinnu starfsmanna sem lögð hefur verið að mörkum á undanförnum árum,“ segir m.a. í rökstuðningi dómnefndar.