Birna Hlín Káradóttir, yfirlögfræðingur MP Straums, hefur látið af störfum hjá bankanum. Greint er frá þessu í DV .

Þar kemur fram að hún hafi tilkynnt um uppsögn sína í síðustu viku.

Hún var áður yfirlögfræðingur Straums en félagið sameinaðist MP banka fyrir um þremur mánuðum síðan.

Birna Hlín á næstum helmingshlut í fyrirtækinu Current Holding sem á um 1,5% eignarhlut í MP Straumi.