Hagar hafa ráðið Birnu Írisi Jónsdóttur sem rekstrarstjóra upplýsingatækni og stafrænnar þróunar hjá fyrirtækinu og dótturfélögum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Högum og jafnframt að um sé að ræða nýja stöðu sem varð til í kjölfar skipulagsbreytinga innan Haga sem tilkynnt var um í ágúst síðastliðnum.

Birna Íris hefur störf þann 15. nóvember næstkomandi, en með ráðningu Birnu Írisar munu Hagar setja aukna áherslu á upplýsingatæknimál félagsins, leitast við að hagræða í upplýsingatæknirekstri, ásamt því að horfa til framtíðar hvað varðar stafræna þjónustu og hagnýtingu tæknilausna.

Birna Íris hefur áralanga reynslu af upplýsingatækni og stafrænni vegferð fyrirtækja. Hún kemur til Haga frá Sjóvá þar sem hún hefur starfað sem forstöðumaður upplýsingatækni síðastliðin tvö og hálft ár. Fyrir það starfaði Birna Íris hjá Landsbankanum í sex ár sem deildarstjóri á upplýsingatæknisviði.

Birna Íris er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.