Birna Sif Krístínardóttir.
Birna Sif Krístínardóttir.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Birna Sif Krístínardóttir hefur verið ráðin netmarkaðssérfræðingur hjá Birtingahúsinu.

Fram kemur í tilkynningu að sérsvið hennar eru netmarkaðsmál en undir það fellur meðal annars leitarvélarbestun, leitarherferðir og samfélagsmiðlar.

Birna er með B.Sc-gráðu í viðskiptafræði frá háskólanum á Bifröst og M.Sc. í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Birna starfaði áður sem vefstjóri hjá Hostelling International á Íslandi.